Hestakráin er skemmtileg blanda af
sveitakrá, veitingastað og gistihúsi

Hestakráin á Húsatóftum Skeiðum er aðlaðandi sveitakrá sem er tilvalinn staður til mannfagnaða s.s. árshátíðir. Hestakráin rúmar hæglega 50 - 70 gesti í sæti.
Áhersla er lögð á þjóðlega, ferska og góða rétti t.d. grillað lambakjöt, lambasteik, fiskrétti, kjötsúpu, kúrekasúpu, heimabakað brauð og bakkelsi. Allt hráefni kemur úr héraði.
Fyrir hópa er t.d. hægt að velja um:
· Súpu og brauð
· Tveggja rétta máltíð
· Þriggja rétta máltíð
Einnig er reynt að verða við séróskum viðskiptavina, má þar nefna afmælisveislu, jólahlaðborð, þorrablót og sviðamessu.
Verð, pantanir og nánari upplýsingar eru veittar í síma 486 5616 / 895 0066.
Hestakráin – kemur skemmtilega á óvart!
